|
|
04.05.2011 19:03:09 / gudridur
Ég skrapp til the Lake District um síðustu helgi. Það var yndislegt! Ef þú ert að spá í að koma , láttu mig þá vita. Hérna eru nokkrar myndir úr ferðinni
»
04.07.2010 15:35:32 / gudridur
Loksins lét ég verða að því að kaupa ryksugu. Reyndar er ekkert teppi á litla frímerkinu mínu en ég þoli ekki orðið að moppa, finnst aldrei eins og allt rykið fari þannig að ég vaknaði snemma og skellti mér í Argos og keypti eina litla. Mig langaði í pínulitla Dyson ryksugu sem kostar tæplega 40.000 en ákvað að vera skynsöm og keypti eina á rúmar 3000 krónur, man ekki einu sinni hvaða vörumerki. Hún er einu orði sagt frábær! Ekki skemmir fyrir að hún er mjög hávær og mun því líka nýtast í stríðinu við hávaðasömu nágranna mína, nú verður sko vaknað snemma og byrjað að ryksuga.
Nú er skólinn loksins að verða búinn, enn samt nóg að gera, ég á eftir að fara yfir eins og 20 verkefni og kenna pínu lítið EN svo kemur að sumarfríi þann 27.julí. Ég ætla auðvitað að koma aðeins heim, og ná að knúsa sem flesta en síðan þarf ég að koma aftur, 19 ágúst þar sem ég er að fara í brúðkaup til Aberdeen. Will og Sarah eru að fara að gifta sig loksins og ég hlakka til að gleðjast með þeim. Síðan er spurning hvort Svava og kannski Hugrún kíki í heimsókn, aldrei að vita og svo byrjar bara skólinn aftur. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, sumir nálgast bara fertugsaldurinn og og eiga eftir að skipuleggja daginn.
Annars eru allir í sárum hér i Bretlandi, fyrst HM og síðan Andy Murray, Held meira að segja að kriket sé eftir, the Ashes, ef við vinnum ekki þá verður allt vitlaust. Það er mjög gaman að fylgjast með þessu, ótrúlegt hvað fólk er heitt í hamsi yfir þessu.. Nú svo er búið að geðveikt veður, sól og blíða núna í rúmar 2 vikur og ekkert lát er á. Loksins hættu Bretar að kvarta yfir sumrinu og nú heyrist barasta ekki neitt. En ég er viss um að það megi ekki rigna í marga daga , þá byrja þeir aftur.
Jæja, best að halda áfram að vinna.
»
14.02.2010 22:16:07 / gudridur
Ekki er ég enn búin að kaupa ryksuguna. Ryksugukaupin mín er fínasta dæmi um kaup sem kaupandi hefur engan áhuga á að gera en neyðist til að gera engu að síður. Tryggingar eru annað dæmi um slíkt. Ég er því enn að moppa en mun gera þessi kaup mín von bráðar, þar sem ég sá eina pínulitla ryksugu sem mér finnst flott.
Brjálað að gera í vinnunni og bara gaman, svona oftast en nú er allt að fyllast af verkefnum og það er ömurlegt. Um síðustu helgi fór ég yfir 88 verkefni og var næstum því dauð af því loknu, ég sver það. Fæ 48 í hausinn í þessari viku og önnur 40 í næstu viku og síðan ekkert fyrr en rétt fyrir páska svo ég viti nú hvað ég eigi að gera í páskafríinu. Er eiginlega að hugsa um að fara til Vopnafjarðar ef það er möguleiki þó svo það verði bara í viku en á eftir að plana það alveg... veit ekki alveg hvað ég geri annars.Það styttist i þorrablót, 27.febrúar í Hull og helgina eftir ætla ég til Hartlepool. Nóg á prjónunum þó svo ég prjóni ekkert.
Jæja, vona að bolludagurinn verði ánægjulegur.
»
30.01.2010 12:30:20 / gudridur
Alltaf þegar ég skúra verður mér hugsað til Ingibjargar í Leiðarhöfn og hvort að hún myndi nú segja að þetta væri nógu vel gert. Ég geri þetta ekkert illa sko, en er samt ekki alveg fullviss um að hún sé samþykk. Bíð alltaf eftir að fá skilaboð að handan en ekkert gerist. Hún Ingibjörg mín reyndi líka að kenna mér að sauma en það mistókst því miður, ég er því miður með 10 þumalputta og alltof mörg letigen. En mikið held ég að hún væri ánægð að sjá prjónaáhugann hjá Vopnfirðingum og já Íslendingum öllum bara...
Lára í Grænuhlíð gerði handavinnuna í samvinnu við mömmu mína. Hún var líka algjör perla, og mér fannst yndislegt að geta kíkt í heimsókn, spilað eða lagt kapall og spjallað. Svo kynnti hún mér líka fyrir Ingibjörgu Sigurðardóttur og heiðarprinsinn og þær bækur voru sko lesnar upp til agna. Það var alls staðar fullt af bókum þannig að þegar búið var að lesa allt bókasafn heimilisins, þá var bara farið í næsta hús og fundið meira til að lesa. Árni maður Láru og Ossa systir hans voru líka yndisleg - ég fékk alltaf fullt af alls kyns góðgæti, mér finnst eins og Ossa hafi alltaf verið fyrir framan sjónvarpið, fínt að vita hvað ég hef þennan sjónvarpsáhuga minn Einu sinni voru móðir mín og Ossa að tala saman í síma, eins og þær gerðu að mér fannst á þessum tíma, gera allt of oft. Ég var að bíða eftir að segja móður minni frá einhverju geðveikt merkilegu (sem ég er búin að gleyma) og ofbauð biðin og skellti barasta á. Man að móðir mín varð ekki voðalega glöð með þetta uppátæki einkadótturinnar.
Uppáhaldshjónin mín voru samt Bogga og Óskar á Höfða. Á einhverjum tíma fannst mér áhugavert að rannsaka hvort meira væri bölvað heima hjá mér eða í Höfða. Grundarliðið vann auðveldlega en þó fannst mér skítt að móðir minn bölvaði pabba ekki eins oft og Bogga Óskari... og notaði ekki eins flott lýsingarorð. Stundum ofbauð mér samt og einu sinni sagði ég Óskari að þegar Boggi væri dauð mætti hann koma flytja inn til okkar. Bogga hins vegar gaf mér alltaf kandís og jii minn hvað mér fannst hann góður. Eiginlega þegar ég hugsa um það, þá er það kraftaverk að ég sé með allar tennurnar því í minningunni þá var ég alltaf á Höfða, í Grænuhlíð nú eða í Fögrubrekku í heimsókn.
Stína mamma mín bjó í Fögrubrekku, ásamt barnapíunum mínum og Guja manninum sínum og í næsta húsi voru Ditta, Hilmar og leikfélagarnir Greta og Imba ... og svo síðar Guddi minn sem ég alveg alein! Alltaf hægt að kíkja í heimsókn og spjalla við fullorðið fólk sem ég held að sé svo mikilvægt. Það verður því að segja að ég hafi fengið eitt það besta uppeldi sem hægt sé að fá. Mamma kenndi mér muninn á réttu og röngu, að standa með sjálfri mér og láta álit annarra ekki á mig fá, bræður mínir dekruðu mig en voru líka hæfilega vondir. Og síðan allt þetta fullorðna fólk sem hafði alltaf tíma til að spjalla við fordekruðu grundargæsina.
Og nú er bara spurningin hvort ég nái að fara út að kaupa ryksugu áður en handboltinn byrjar eða ekki..... hvað segið þig, hálftími, er það nóg?
»
24.01.2010 10:22:15 / gudridur
og þar sem ég sofnaði í sófanum um tíu leytið var ég vöknuð kl. 7. Er búin að liggja í rúminu og berjast við að halda augunum lokuðum en gefst upp enda er kl. orðin 10.
Þorrablót á Vopnafirði í gær, og ég forvitin að heyra fréttirnar, var gert grín af einhverjum sem ég þekki, eitthvað sem ég veit um?
Nú og sjálfstæðisflokkurinn í Rvk raðaði á listann sinn. Venjulegast gæti mér ekki verið meira sama og ekki ætla ég að kjósa listann EN... ég sá að Júlíus Vífill er tryggur í öðru sæti. Aðeins einu sinni hef ég hitt þann mann, uppi á Stöð 2 sem þá, að minnsta kosti af nafninu, var í eigu Jóns Ólafssonar. Júlíus þessi vildi sko ekki mæta á fundinn og hagaði sér eins og hann væri haldinn illum anda og ég hef eiginlega aldrei,held ég, upplifað annað eins og hef ég þó verið kennari í annsi mörg ár og séð ýmislegt. Þess vegna langar mig að óska sjálfstæðismönnum til hamingju, þeir greinilega þekkja mannkosti þegar þeir sjá þá, og auðvitað reykvíkingum enda er ég handviss um að hann vinnur ötullega að framförum í ykkar þágu (ef þær eru honum þóknanlegar).
Það er blíðviðri í Nottingham í dag, ég ætla að reyna að undirbúa mig fyrir mjög þétta kennsluviku og fyrstu kennsluna mína á mastersstigi -stressandi en jafnframt gaman að spreyta sig. Síðasta vika var ömurleg og eina jákvæða var fundur með þremur íslenskum skutlum sem búa í Nottingham og nágrenni. Í næstu viku ætla ég að skella mér á fyrsta fótboltaleikinn hér í Borg, ég og Maggi ætlum að kíkja á Nottingham Forest á þriðjudagskvöldið, það verður nú gaman. Nú svo er Þorrablót í Hull 27. febrúar og ég get ekki beðið... jíbbý jey. Og í byrjun mars heimsæki ég Manchester borg með fleiri vinkonum mínum þar sem við hyggjumst gæsa Söru vinkonu mína. Nú, síðan verð ég komast fljótlega til Hartlepool þannig að það er nóg af döfinni ef ég bara lifi vikurnar af og fríka ekki út. Vil samt benda á að nemendur eru ekki ergja mig, þeir eru mjög fínir. Og nú er komið að morgunmat xx
»
18.10.2009 19:08:50 / gudridur
Loksins skrifa eg, er ad horfa a X-factor og akvad ad skrifa nokkrar linur. Eg er astfangin ... af Nottingham. Thetta er yndisleg borg og eg held ad eg eigi eftir ad fila thad i botn ad bua her, thegar PhD er buin. Nu styttist i thad sem betur fer. Eg er byrjud ad vinna og kenna, otrulega gaman og eg er i skemmtilegasta starfi i heimi tho svo ad thad se lika erfitt... eg er buin ad vera svo threytt ad eg hef sofnad kl. 10 a kvoldin. Hef fengid fullt af heimsoknum, Lisu, hitti Ola og halfa Asgardsfjolskylduna i Manchester, Hrefna kom og sidan Sophia alla leid fra Kina. Um naestu helgi aetla sidan einhverjir Hullarar ad lata sja sig i stutta heimsokn. Nog ad gera eins og alltaf og lifid bara ljuft
»
08.09.2009 15:26:01 / gudridur
her efst til vinstri en hnappur sem heitir heimilisfang og simanumer. Eg er buin ad uppfaera thessar upplysingar nuna, svo thid getid sent mer post og hringt i mig
»
27.08.2009 11:20:45 / gudridur
Nu er eg komin med tolvu og bord og stol i vinnunni. Thad munar sko miklu skal eg segja ykkur. Reynar maeti eg alltaf med mina tolvu lika thar sem mer finnst betra ad vinna PhD vinnuna mina a hana en skolatolvan er ad mestu ohreyfd nema thegar eg athuga facebook og skoda tolvupostinn minn. Ekki er eg komin med internet enn, eg hringdi i Virgin i gaer og var sagt ad thegar eg konan sem eg pantadi thjonustuna hja hefdi bara gefid upp of stuttan afgreidslutima, en hun sagdi mer ad thad taeki 10 virka daga ad fa broadband. Nuna hafa 6 eda 8 dagar baest vid og byst alls ekki vid thvi ad vera komin med internetid heima fyrr en i oktober, nei vonandi adeins fyrr. Reyndar var sidan hringt i mig i gaer og mer tilkynnt ad thad kaemi madur heim og athugadi simalinuna mina sem hann kom og gerdi thannig ad kannski fer thetta ad koma. Lisa kemur eftir viku akkurat, eg trui thvi varla ad tha se ad koma september. Nu svo eru Armann Smari, Gudrun Lind og stelpurnar ad flytja til Hartlepool thannig ad nu get eg loksins drifid mig i heimsokn, finnst geggjad ad eiga i fyrsta skipti fjolskyldu her i UK, Tha baetis einn eitt fotboltalidid vid, eg veit ekki hvort madur getur haldid med ollum thessum fotboltalidum her i Bretlandi, audvitad Man Utd og svo Hull, Nottingham Forrest og Hartlepool...thad er full vinna ad fylgjast med thessu ollu
»
19.08.2009 13:46:37 / gudridur
Min er barasta flutt og jii hvad thad er skrytid. Mjog furdulegt ad vera alein allt i einu og hafa engan til ad tala vid. Thess vegna er eg i skolanum thar sem eg neydi folk til ad tala vid mig  Ibudin er agaet, alveg rosalega litil og nett en nog fyrir eina manneskju. Eg er buin ad koma mer fyrir ad mestu, tharf ad gera svona ymislegt adur en Lisa kemur en ekkert rosalegt. Eg er komin med adstodu fram i desember en tha flytjum vid i nytt husnaedi. Allir eru vodalega almennilegir svona vid fyrstu syn. Fae vonandi mina tolvu a naestu dogum, og tha get eg komid hingad ef eg frekar vera her heldur en heima. Se bara tilEg er buin ad fara i gegnum alls konar kynningar, man sennilegast ekki mikid af thvi en thad hlytur ad koma. Eg veit hvad eg verd ad kenna og mer synist thad vera svipad og i Hull, en i februar fae eg minn eigin kurs, sem eg mun thurfa ad sja um fra a-z, en efnid fyrir hann er tilbuid. Verdur spennandi en eg er med sma magapinu. Nottingham er yndisleg borg, eg reyndar sef frekar illa, thar sem ad vinnuvelar eru ad storfum fram a rauda nott. Eg sem helt ad eg myndi ekki sofa af thvi ad staersti gay naeturklubbur Nottingham er hinum megin vid gotuna, en nei.. thad heyrist ekki tist i hommunum og lessunum. Eg fer alltaf daglega i gongutura en hef ekki farid ad neina veitingastadi yet. Fae vonandi abendingar um goda stadi adur en Lisbet kemur. Jaeja, farin ut held eg bara, atti ad vera hitabylgja i dag en mer finnst ekki vodalega hlytt, kannski af thvi ad eg er inni
»
02.08.2009 21:13:28 / gudridur
Svo skrýtið að vera að fara frá Hull. Pakkaði í dag og reyndi að henda sem flestu enda er ég að fara í pínulítinn skókassa og því ekki hægt að taka allt draslið mitt með. Ég á svo mikinn pappír, þarf maður að eiga þetta allt. Ég treysti ekki bönkunum hér og held upp á allar kvittanir.
En þann 12. ágúst flyt ég og verð sennilegast ekki í tölvusambandi fyrst um sinn, mér var reyndar sagt 5 vikur að fá Broadband en vona að það verði ekki.
Þarf að kaupa tölvu, hún verður keypt fyrir klinkið sem ég fór með í Tesco á föstudaginn, 179 pund, takk fyrir. Annars verður ekkert verslað fyrr en ég sé hvernig þetta verður í Nottingham. Fór í messu í dag, sem er nú ekki frásögu færandi nema að það er auðvitað beðið fyrir öllum, sjúkum, öldruðum, hermönnum í Afganistan og aumingja fólkinu í Afríku. En í dag var nýjum minnihluta, sárþjóðum hópi bætt við, já Íslendingum.Aumingja við..... Hey, hó, Lísa er að koma í heimsókn í september og síðar í september gerist eitthvað stórkostlegt sem ég vil ekki tala um hér.........
og fótboltinn er að byrja aftur, einhverjum sem finnst sumarið hafa verið skelfilegt að því að enginn var enski boltinn????
»
11.07.2009 16:13:56 / gudridur
i tolvuna...en eg a audvitad ad vera ad laera... eins og alltaf. Er ekkert byrjud ad skipuleggja flutning en fyrsti vinnudagur er 17.agust en sem betur fer er ekki fyrsti kennsludagur fyrr en 12. oktober. Mer synist lika ad vid hofum thrjar annir en ekki tvaer eins og her i Hull eda heima. Mer veitir svo sem ekki af thvi ad byrja ad undirbua, man nu hvernig thetta var thegar eg byrjadi ad kenna i mennto, thetta tekur ogedslega mikinn tima. Og svo fekk eg annad atvinnutilbod... fra Sheffield Hallam. Eg for thangad i mai i vidtal og fekk ekki starfid en svo hringdu their og budu mer starf. Thvi midur var eg buin ad segja ja vid Nottingham og verd ad standa vid thad. Er samt anaegd med ad hafa farid i tvo atvinnuvidtol og fengid thau baedi  Ritgerdin..... eg er ad reyna ad klara sem mest adur en eg fer og adur en kennsla hefst i oktober, tha verd eg komin vonandi med gott draft... eg fae 2 daga i viku fria til ad vinna i ritgerdinni fram ad aramotum og thad verdur ad duga. Bodar thad ekki gott, ad byrja a thvi ad skoda hvenaer eg kemst i jolafri adur en eg byrja ad vinna? Eg vinn ut 18. desember svo ekki byrjar jolafriid snemma. En tha kem eg HEIM, get ekki bedid.... eg hlakka svo til. Njotid sumarsins elskurnar,
»
19.06.2009 21:19:34 / gudridur
Ég er búin að fá vinnu í haust. Mín verður lector í markaðsfræðum við Nottingham Trent University. Sem þýðir að ég þarf að flytja, byrja 17. ágúst næstkomandi. Ég er ótrúlega spennt og líka stressuð. Eins gott að ég standi mig. Og svo þarf ég að klára ritgerðina. Er að vona að andinn komi yfir mig og ég nái góðri yfirsetu en so far horfi ég bara út í loftið og er yfirspennt. En ég hlýt að fara að róast. Við höldum upp á 17.juní á sunnudaginn, hlakka til að fá íslenskar pylsur.. Ekki þarf mikið að gleðja mig
»
08.06.2009 16:45:55 / gudridur
Eg by med einum dreng og einni stulku. A morgnana thegar eg hitti drenginn, heilsumst vid " Good Morning" og forum okkar leid. Thegar eg hitti stelpuna a eftirfarandi samtal ser stad. G. Good Morning Stulka: Good Morning. Are you coming home early today? G. Probably, going to the gym today. Stulka. Ok, see you then.
»
07.06.2009 19:47:17 / gudridur
Gleðilegan sjómannadag sjómenn og þið hin hafið vonandi komist í siglingu í dag. Mig langaði í siglingu en fann engan til að sigla með mig upp og niður mórauða Humber. Í stað þess gerði ég ekkert nema að horfa á 24 í allan dag. Auðvitað ætlaði ég mér að klára umsókn sem ég þarf að skila inn á morgun en þegar ég settist við skrifborðið mitt varð ég svo þyrst, svo svöng etc.. þangað til að ég gafst upp.
Annars er nóg að gera, kennarinn minn kom óvænt til baka frá Ítalíu sem þýddi að ég varð að klára ýmislegt í flýti og skila inn til hans. Nú svo er að að sækja um vinnu og fara í atvinnuviðtöl sem tekur of mikinn tíma frá ritgerðinni, smá stress í gangi. Held samt að Guð hafi smá samúð með mér því það er skítkalt úti, þungbúið en hefur ekki rignt enn sem komið er. Mér væri sko sama að veðrið væri bara svona næstu mánuðina, kannski ég ætti bara að flytja til Grænlands og dvelja þar í nokkra mánuði. Þurfti að fara aftur til sjúkraþjálfara í nudd í vikunni og hann ráðlagði mér (aftur) að fara í göngugreiningu þar sem hann heldur að bakverkur og verkur í vinstri fæti sé af því að hægri fótur er víst einum og hálfum cm styttri. Ég þarf að muna eftir að gera það við tækifæri. En best halda áfram með Bauer, hann má ekki bíða. Knús og kram..
»
03.06.2009 21:28:21 / gudridur
Ég er hætt að hafa áhyggjur af ykkur á þessi skeri þarna, eða svona næstum því. Nú er ég að hugsa um karlmenn. Guði sé lof, segja örugglega sumir . Ég var í ræktinni og þar sem ég skokkaði í rólegheitunum á hlaupabrettinu horfði ég framan í sveitta gaura lyfta lóðum. Það er eiginlega fyndið að sjá hvað þeir espa hvern annan upp og eru síðan alveg að skíta á sig við að lyfta allt of þungum lóðum. Svo athuga þeir alltaf reglulega hvort einhver sé að horfa á þá og ef ekki þá stara þeir í spegilinn og laga greiðsluna - og brosa.
»
Síður: 1 2 3 ... 28
|
Heimsóknir
Í dag: 11 Alls: 108128
Dagsetning
9. febrúar 2012
Könnun
Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
|